| Sf. Gutt

Mark í tveimur leikjum í röð!


Það gerist ekki á hverjum degi að Andrew Robertson skori fyrir Liverpool. En hann er nú búinn að skora í tveimur leikjum í röð. Það hefur hann ekki áður afrekað á ferli sínum hjá Liverpool. 



Andrew skoraði fyrra mark Liverpool þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við West Ham. Hann endurtók svo leikinn í 4:2 sigri Liverpool á Tottenham um síðustu helgi. 


Markið á móti Tottenham var 11. mark mark Skotans á ferli sínum hjá félaginu sem telur 296 leiki. Hann er búinn að skora þrjú mörk á leiktíðinni. Andrew hefur aldrei skorað fleiri en þrjú mörk á sömu leiktíðinni. Kannski nær hann markameti!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan