Gleðilegt sumar!

Liverpool klúbburinn á Íslandi óskar öllum lesendum Liverpool.is, nær og fjær, gleðilegs sumars og sólríkra daga. Um leið skal þakkað fyrir veturinn sem var að líða.
Segja má að veturinn hafi verið mjög góður fyrir Liverpool. Deildarbikarinn vannst á eftirminnilegan hátt eftir sigur á Chelsea á Wembley. Liverpool hefur verið með í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn alla leiktíðina en það var kannski ekki reiknað með því fyrir keppnistímabilið. Lengi vel var liðið í baráttu um fjóra titla. Enn er möguleiki á tveimur titlum í sumar.
Vonandi færir sumarið okkur öllum góða daga með blóm í haga og hagfellda tíð til sjós og lands. Við óskum svo þess að tíðarfarið verði með besta móti hjá Liverpool Football Club með hækkandi sól og björtum sumarnóttum.
Njótið sumarins!
-
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt!

