| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch getur ekki spilað með Liverpool í næstu leikjum. Hann var borinn af velli á Wembley á sunnudaginn og því kemur staðfesting á því að hann sé úr leik ekki á óvart. Ekki er víst hversu lengi hann verður frá en hann getur alla vega ekki spilað næstu tvo leiki.
Ryan var í byrjunarliðinu gegn Chelsea í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Leikmaður Chelsea sparkaði hann niður í fyrri hálfleik þannig að bera þurfti Hollendinginn af velli. Hann fagnaði á hækjum eftir leikinn.
Meiðslalistinn lengdist því með tilkynningunni um Ryan. Hann gæti orðið lengri því óvíst er hvort Wataru Endo verður leikfær fyrir FA bikarleikinn við Southampton annað kvöld. Hann var uppgefinn eftir úrslitaleikinn enda búinn að leggja allt í sölurnar. Mohamed Salah, Darwin Núnez og Dominik Szoboszlai eru á batavegi og hugsanlega verður einhver af eim tilbúinn í slaginn.
TIL BAKA
Ryan úr leik

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt!
Fréttageymslan