| Sf. Gutt

Tveir í viðbót á meiðslalistann

Tveir leikmenn Liverpool missa af næstu leikjum. Ekki liggur fyrir hversu lengi þeir verða frá leik og keppni. Um er að ræða þá Alisson Becker og Diogo Jota en þeir meiddust báðir á móti Manchester City.


Alisson Becker sttist niður á lokaandartökum leiks Liverpool og Manchester City. Hann fann fyrir eymslum aftan í læri og nú liggur fyrir að hann er tognaður. Tognunin er ekki mjög alvarleg og því er vonast til að hann missi ekki af mörgum leikjum. Það liggur ljóst fyrir að Caoimhin Kelleher tekur stöðu Brasilíumannsins. 


Diogo Jota fór meiddur af velli en ekki hefur alveg komið fram hvers eðlis meiðslin eru. Talið er að hann verði lengur á meiðslalistanum en Alisson. 

Vonandi ná þeir félagar skjótum og góðum bata. Það munar um alla menn núna þegar margir leikir eru á dagskrá á komansi vikum. 

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan