| Sf. Gutt

Fjórir tilbúnir eftir hvíld

Fjórir af aðalliðsmönnum Liverpool misstu af síðasta leik liðsins gegn Brentford vegna meiðsla. Þeir eru tilbúnir á nýjan leik eftir góða hvíld í landsleikjahrotunni.


Þetta eru þeir Joe Gomez, Ryan Gravenberch, Curtis Jones og Ibrahima Konate. Það verður gott að fá þá aftur inn í liðshópinn því nú tekur við stíf leikjadagskrá. Ekki er vitað til þess að neinn af landsliðsmönnum Liverpool hafi komið meiddur til baka úr landsleikjunum og það er auðvitað hið besta mál. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan