| Sf. Gutt
Jude Bellingham hefur æ ofan í æ síðustu mánuði verið orðaður við Liverpool. Jordan Henderson segir að það yrði frábært að fá Jude til félagsins.
,,Mig langar bara til þess að hann nái að verða eins góður leikmaður og hæfileikar hans bjóða upp á. En auðvitað yrði það frábært ef hann kæmi til Liverpool. En þetta verður allt að passa við hvað kemur honum best. Öll félög myndu vilja fá hann í sínar raðir."

,,Hann verður fyrst og síðast að hugsa um sjálfan sig og taka þá ákvörðun sem verður best fyrir feril hans. En félagið sem fær hann í sínar raðir dettur í lukkupottinn."
Hermt er að það fari mjög vel á með Jordan og Jude þegar þeir hafa verið saman með enska landsliðinu. Vonandi hefur Jude áhuga á að koma til Liverpool. Það yrði ekki ónýtt ef Liverpool yrði liðið sem myndi detta í lukkupottinn sem Jordan talar um.
TIL BAKA
Yrði frábært að fá hann til Liverpool!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt
Fréttageymslan