| Sf. Gutt

Sjötti fulltrúi Liverpool til að leika um gull á HM


Ibrahima Konaté varð núna í desember sjötti leikmaðurinn í sögu Liverpool til að leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu. Hann náði ekki gullinu.  

Ibrahima lék                leiki með Frökkum. Hann kom inn sem varamaður í úrslitaleiknum gegn Argentínu. Hann komst þar með í hóp með þeim Roger Hunt, Dietmar Hamann, Fernando Torres, Dirk Kuyt og Dejan Lovren en þeir komu allir við sögu í úrslitaleikjum HM meðan þeir voru leikmenn Liverpool. 


Roger Hunt varð heimsmeistari með Englendingum 1966. Hann spilaði allan leikinn við Vestur Þýskaland sem fór í framlengingu. Dietmar spilaði 90 mínútur í úrslitaleik Þýskalands og Brasilíu 2002 þar sem Þjóðverjar töpuðu.

 
Dirk Kuyt og Fernando Torres tóku síðan báðir þátt í úrslitaleik Spánar og Hollands 2010.  En þeir mættust raunar ekki. Dirk Kuyt var tekinn út af eftir rúmar 70 mínútur og Fernando Torres kom inná í seinni hálfleik framlengingar. Hann var inni á vellinum þegar Iniesta tryggði Spánverjum fyrsta og eina heimsmeistaratitil sinn. 


Ibrahima Konaté varð þriðji maðurinn í sögu ensku Úrvalsdeildarinnar til að spila úrslitaleik í Meistaradeildinni og HM á sama tímabili. Það gerði Thierry Henry 2006, þegar Arsenal tapaði fyrir Barcelona í CL og Frakkar töpuðu fyrir Ítölum á HM. Dejan Lovren afrekaði þetta 2018 þegar hann lék með Liverpool sem tapaði fyrir Liverpool í Meistaradeildinni. Hann lék svo úrslitaleikinn á HM þegar Króatía tapaði fyrir Frakklandi. Ibrahima var líka í tveimur tapliðum eins og Thierry og Dejan.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan