| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Katar


Kynningunni á fulltrúum Liverpool í Katar er auðvitað framhaldið. Sá sjötti í röðinni kemur frá Brasilíu. Fabinho Tavarez er hér kynntur til sögunnar. 

Nafn: Fabinho Tavarez.

Fæðingardagur: 23. október 1993.

Fæðingarstaður: Campinas í Brasilíu. 

Staða: Miðjumaður.


Félög á ferli: Fluminense, Rio Ave, Real Madrid, Monaco og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 7. júní 2015 gegn Mexíkó.

Landsleikjafjöldi: 28.

Landsliðsmörk: 0.

Leikir með Liverpool: 191.



Mörk fyrir Liverpool: 11.

Stoðsendingar: 7.


Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Fabinho spilaði stórvel. Hann varði vörnina áföllum og skoraði meira að segja nokkur mörk.  

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Brasilíumaðurinn er öruggur og traustur í stöðu aftasta miðjumanns. Það eru fáir betri í þeirri stöðu. 

Hver er staða Fabinho í landsliðinu? Hann hefur yfirleitt verið valinn í landsliðshópinn síðustu ár. Hann á þó ekki fast sæti í byrjunarliðinu.

Hvað um Brasilíu? Það er valinn maður í hverju rúmi í brasilíska landsliðinu. Liðið er án efa eitt af þeim bestu um þessar mundir. Flestir sparkspekingar telja að liðið eigi mjög góða möguleika á að vinna heimsmeistaratitilinn.  

Alþjóðlegir titlar Brasilíu:
Heimsmeistarar: 1958, 1962, 1970, 1994 og 2002. Suður Ameríkumeistarar:  1919, 1922, 1949, 1989, 1997, 1999, 2004, 2007 og 2019. Olympíumeistarar: 2016 og 2020. Álfumeistarar: 1997, 2005, 2009 og 2013.


Besti Brasilíumaður allra tíma?
Pele. Af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sögunnar. Hann varð þrisvar sinnum heimsmeistari með Brasilíu og hefur enginn unnið titilinn oftar. Hann skoraði rúmlega 1000 mörk á ferli sínum! Um síðustu aldamót var hann kjörinn Leikmaður 20. aldarinnar af Aljóðaknattspyrnusambandinu. Ótrúlegur leikmaður! 


Vissir þú? Móðir hans lagði til að hann hefði nafnið Fabinho aftan á keppnistreyju sinni. Það er í raun ekki eitt nafna hans. Hann er skírður Fábio Henrique Tavares.

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan