| Sf. Gutt
Sigur Liverpool á Manchester City kostaði sitt. Á lokaandartökum leiksins meiddist Diogo Jota og verður frá keppni þar til á nýju ári. Hann meiddist á kálfa. Meiðslin eru slæm en hann þarf ekki í aðgerð. Aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af viðbótartímanum og ótrúlega slysalegt að Diogo skyldi meiðast þá.
Portúgalinn er tiltölulega nýkominn til leiks eftir meiðsli en hann missti af upphafskafla leiktíðarinnar. Hann var frábær á móti City og þar áður var hann búinn að leggja upp fjögur mörk í tveimur leikjum. Það er því hið versta mál að hann skuli verða meiddur svona lengi.
Fyrir utan að Diogo er úr leik hjá Liverpool missir hann af Heimsmeistarakeppninni. Það eitt og sér er auðvitað mikið áfall fyrir þennan snjalla leikmann. Eins er það áfall fyrir Portúgal en Diogo hefur verið fastamaður í landsliðinu. Við vonum að Diogo nái sér vel og hann komi sterkur til leiks á nýju ári.
TIL BAKA
Diogo meiddur

Nýlegar fréttir
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika!
Fréttageymslan