| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Gomez skiptir um númer
Joe Gomez mun leika í treyju númer 2 á komandi tímabili.
Gomez var keyptur frá Charlton Athletic sumarið 2015, fékk hann þá treyju númer 12 og hefur leikið með það númer á bakinu allar götur síðan. Fram til þessa hefur hann spilað 142 leiki fyrir félagið, þar af 87 í úrvalsdeildinni. Honum hefur ekki enn tekist að skora mark en vonandi nær hann að bæta úr því enda kominn tími til.
Ferill hans hefur því miður verið meiðslum stráður meira og minna en meistara tímabilið 2019-20 spilaði hann alls 43 leiki og myndaði þar ógnarsterkt miðvarðapar með Virgil van Dijk. Það væri gaman að sjá það rætast á ný á þessu tímabili en eins og við vitum öll er Gomez hörku góður varnarmaður og liðið þarf á hans kröftum að halda.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Meistaradeildin að byrja -
| Sf. Gutt
Enn þokast Mohamed Salah upp listann! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Meistaradeildarhópur Liverpool staðfestur! -
| Sf. Gutt
Fyrsta æfingin! -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Af lánsmönnum -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Áhættunnar virði! -
| Sf. Gutt
Búið að dagsetja Evrópuleikina
Fréttageymslan