| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Nýr heimavöllur Liverpoolklúbbsins á Íslandi!
Minigarðurinn verður heimavöllur okkar í vetur. Það er óhætt að fullyrða að hvergi verði hagstæðara fyrir poolara að koma saman í vetur, enda Simmi Vill grjótharður poolari sjálfur.
Minigarðurinn er eins og flestir vita staðsettur í Skútuvogi í Reykjavík og þar er afburða góð aðstaða til að horfa á leiki og ekki skemmir fyrir að þar er einnig hægt að gæða sér á allskonar kræsingum, geggjaðir borgarar, þristamús og allskonar fínerí.
Það verða flott tilboð á mat, drykk, minigolfi og fleira fyrir félagsmenn sem við auglýsum nánar síðar og strax á morgun byrjar veislan, með æfingaleik Liverpool og RB Leipzig sem hefst kl. 17.15.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta og skoða nýja heimavöllinn.
Um leið og við fögnum þessum nýja og spennandi samstarfssamningi viljum við þakka SPOT í Kópavogi kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár.
Með Liverpoolkveðju,
Stjórn Liverpoolklúbbsins á Íslandi.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju!
Fréttageymslan