| Sf. Gutt
Hvernig væri að baka eina rjómatertu og skella 130 afmæliskertum á hana í tilefni dagsins? Það er reyndar kannski svolítið erfitt að koma svo mörgum kertum fyrir á einni tertu. Það verður bara að hafa hana stóra. Liverpool Football Club á nefnilega afmæli í dag!
Everton, sem var stofnað árið 1878, hafði leikið á Anfield Road frá árinu 1884. Forráðamönnum félagsins þótti leigan, sem þeir borguðu fyrir afnot af vellinum of há, og þann 12. mars 1892 var haldinn fundur um málið. Forsvarsmenn Everton neituðu að borga uppsetta leigu til vallareigandans og hættu þar með að leika á Anfield Road. Sem betur fer!
Þann 15. mars var aftur haldinn fundur þar sem eigandi Anfield Road John Houlding ákvað, ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum sínum, að stofna knattspyrnufélag til að leika á Anfield. Félagið sem John og samstarfsaðilar hans stofnuðu hlaut nafnið Liverpool Association Football Club. Fáir hafa unnið gagnlegri verk hvað knattspyrnu varðar!
Það var svo 3. júní 1892 sem knattspyrnufélagið Liverpool F.C. var skrásett hjá opinberum yfirvöldum. Þar með var félagið formlega stofnað og gat hafið starfsemi. Það má því segja að 3. júní sé opinber afmælisdagur félagsins þó svo 15. mars sé líka lykildagur í sögu félagsins því þá var tekin ákvörðun um stofnun félagsins.
Í tilefni stórafmælisins var birt nýtt myndband. Það má horfa á myndbandið hér!
TIL BAKA
Liverpool Football Club á afmæli í dag!

You'll never walk alone
When you walk through the storm
Hold your head up high
And don't be afraid of the dark
At the end of the storm
There's a golden sky
And the sweet silver song of the lark
Walk on, through the wind
Walk on, through the rain
Though your dreams be tossed and blown
Walk on, walk on, with hope in your heart
And you'll never walk alone
You'll never walk alone
Walk on, walk on, with hope in your heart
And you'll never walk alone
You'll never walk alone!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Ungliðar á braut -
| Sf. Gutt
Það fengust peningar fyrir Trent -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan markmann
Fréttageymslan