| Sf. Gutt

Nokkrir ungir yfirgefa Liverpool

Á þessum árstíma fara jafnan nokkri ungliðar frá félögum sínum. Sumir eru seldir en samningar annarra renna út og þeir fara að leita sér að nýjum félögum. Hér er listi yfir þrjá sem hafa farið frá Liverpool á síðustu vikum.

Varnarmaðurinn Remi Savage söðlaði um og fór til Newcastle United. Hann er 19 ára. 

Liam Coyle gekk til liðs við Accrington Stanley. Liam er miðjumaður. 

Pólski markmaðurinn Kamil Grabara samdi við danska liðið FC Kaupmannahöfn. Hann gerði fimm ára samning. Kamil kom til Liverpool 2016. Hann var áður tvívegis í láni í Danmörku hjá AGF. Leiktíðina 2019/20 var hann lánsmaður hjá Huddersfield Town. Hann komst einu sinni á varamannabekkinn hjá aðalliði Liverpool. 

Ekki er ólíklegt að fleiri ungliðar fari fyrir fullt og fast áður en þetta sumar er úti. Eins eiga örugglega einhverjir eftir að fara í lán. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan