| HI
TIL BAKA
Breytingar í stjórn Liverpoolklúbbsins
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins var haldinn á dögunum. Nokkrar breytingar urðu á stjórn klúbbsins og voru meðal annars þrír nýir stjórnarmenn kjörnir.
Eftir að skýrslur stjórnar og gjaldkera höfðu verið lagðar fram varð komið að kosningum. Tíu manns voru í framboði um sex laus sæti. Fyrir lá að Hrólfur Þór Valdemarsson og Ingi Björn Ágústsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs auk þess sem eitt aðalstjórnarsæti hafði losnað fyrr í vetur þannig að nokkur endurnýjun var viðbúin.
Fyrst var kosið um fjóra aðalstjórnarmenn, þrjár til tveggja ára og einn til eins árs. Þeim kosningum lauk þannig:
Sverrir Jón Gylfason: 19
Pálmi Ólafur Theodórsson: 15
Róbert Páll Chiglinsky: 11
Haraldur Emilsson: 10
Kristinn Þór Ingvason: 8
Benedikt Jón Sigmundsson: 6
Heimir Eyvindarson: 4
Agnar Trausti Júlíusson: 3
Freyr Brynjarsson: 2
Sverrir Gauti Hilmarsson: 2
Þar með voru Pálmi Ólafur Theodórsson, Róbert Páll Chiglinsky og Sverrir Jón Gylfason kjörnir í aðalstjórn til tveggja ára en Róbert Páll er nýr í stjórn. Haraldur Emilsson var kjörinn í aðalstjórn til eins árs.
Þá tók við kosning tveggja varastjórnarmanna. Þeir sex sem eftir stóðu voru áfram í framboði og voru úrslitin eftirfarandi:
Heimir Eyvindarson: 13
Kristinn Þór Ingvason: 12
Benedikt Jón Sigmundsson: 9
Agnar Trausti Júlíusson: 3
Freyr Brynjarsson: 1
Þar með voru Heimir Eyvindarson og Kristinn Þór Ingvason kosnir í varastjórn en þeir eru báðir nýir í stjórn.
Liverpoolklúbburinn þakkar öllum frambjóðendum sýndan áhuga á starfi klúbbsins. Jafnframt eru nýir stjórnarmenn boðnir velkomnir til starfa.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Sterkur sigur! -
| Sf. Gutt
Thiago ennþá meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp setur nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Evrópuvegferð Liverpool byrjaði vel! -
| Sf. Gutt
Gerum allt sem við getum til að vinna! -
| Sf. Gutt
Ben Doak kominn með nýjan samning -
| Sf. Gutt
Við verðum að stefna mjög hátt! -
| Sf. Gutt
Alltaf gaman að skora -
| Sf. Gutt
Aftur endurkomusigur á útivelli! -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp kominn með 300 deildarleiki
Fréttageymslan