| Sf. Gutt
Lazar Markovic er farinn frá Liverpool til Fulham. Hann náði sér aldrei á strik en segir það hafa verið mikinn heiður að hafa verið leikmaður hjá Liverpool.

,,Það var heiður að vera hluti af þessu goðsagnakennda félagi. Ég þakka öllum hjá Liverpool Football Club innilega fyrir. Það var mér ánægja að vera hérna. Gangi ykkur allt í haginn!"
Lazar kom til Liverpool 2014. Liverpool keypti hann frá Benfica, þar sem hann sló í gegn, en hann náði sér aldrei á strik á Englandi. Á meðan hann var hjá Liverpool lék hann í láni hjá Fenerbahçe, Sporting Lissabon, Hull City og Anderlecht.
Lazar hóf feril sinn hjá Partizan Belgrade þar sem hann varð tvívegis, 2012 og 2013, serbneskur meistari. Hann varð landsmeistari, bikar- og Deildarbikarmeistari hjá Benfica leiktíðina 2013/14. Vonandi nær hann sér í gang hjá nýju félagi!
TIL BAKA
Heiður að vera hjá Liverpool!

Nýlegar fréttir
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu
Fréttageymslan