| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Clyne í aðgerð
Meiðslavandræði Nathaniel Clyne halda áfram og á mánudaginn fór hann í aðgerð vegna bakmeiðsla sem hafa hrjáð hann alveg síðan á undirbúningstímabilinu.
Clyne verður frá æfingum og keppni næstu þrjá mánuðina eftir þessa aðgerð sem þýðir að hann mætir til æfinga aftur um miðjan febrúar ef allt gengur eftir.
Í október leit út fyrir að Clyne væri að jafna sig af þessum meiðslum og mætti hann aftur til léttra æfinga á Melwood. Jürgen Klopp sagði svo fyrir West Ham leikinn að allt liti út fyrir að Clyne væri alls ekki orðinn góður og væri lengur frá. Ákvörðun var því tekin um að senda hann í aðgerð, eins og áður sagði var hún framkvæmd á mánudaginn í London.
Meiðsli Clyne gefa þeim Joe Gomez og Trent Alexander-Arnold tækifæri á því að halda áfram að spila hægri bakvarðastöðuna og vonandi haldast þeir félagar heilir því í hönd fer nú mikil törn í Úrvalsdeildinni.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly
Fréttageymslan