| Sf. Gutt
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður ekki með í kvöld gegn Englandsmeisturum Leicester City. Hann meiddist á fæti á æfingu fyrir helgi ef rétt er skilið. Hugsanlegt er talið að hann geti ekki heldur verið með á móti Arsenal um næstu helgi.
Öll meiðsli koma á slæmum tíma og það er vont að missa Jordan út úr liðinu því sama hvað um hann er sagt þá leikur hann mikilvægt hlutverk í liðinu og hann spilaði mjög vel á móti Tottenham í síðasta leik. Gjarnan er það svo að þegar hann spilar vel þá leikur liðið vel.
Jordan hefur verið meiddur af og til á leiktíðinni og oft spilað tæpur en þessi meiðlsi eru ekki tengd þeim meiðslum.
TIL BAKA
Jordan Henderson meiddur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool! -
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones! -
| Sf. Gutt
Armin Pecsi kominn með landsleik -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konaté fer til Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur! -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Victor Munoz keyptur!
Fréttageymslan