| Heimir Eyvindarson
Jürgen Klopp sendi Mamadou Sakho heim úr æfingabúðum félagsins í Bandaríkjunum í gær. Opinbera skýringin er meiðsli, en heimildir herma að eitthvað meira búi að baki ákvörðun stjórans.
Sakho hefur átt við meiðsli að stríða og opinber skýring félagsins er sú að það sé betra fyrir hann að halda áfram í endurhæfingu á Melwood. Sú skýring heldur hinsvegar ekki alveg vatni því Lucas Leiva og Joe Gomez, sem báðir eru meiddir, verða áfram með hópnum í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að það sé nokkuð ljóst að þeir muni engan þátt taka í æfingaleikjunum.
Samkvæmt Liverpool Echo mun ástæðan fyrir heimsendingu Frakkans vera sú að Klopp líkaði ekki framferði hans á æfingasvæðinu. Það eru í rauninni mjög merkilegar fréttir því eftir því sem segir í Echo var Sakho einmitt tekinn með vegna þess hversu mikilvægur hann væri fyrir hópinn. Alltaf léttur á æfingasvæðinu.
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessu máli fram vindur
TIL BAKA
Sakho sendur heim!
Jürgen Klopp sendi Mamadou Sakho heim úr æfingabúðum félagsins í Bandaríkjunum í gær. Opinbera skýringin er meiðsli, en heimildir herma að eitthvað meira búi að baki ákvörðun stjórans. Sakho hefur átt við meiðsli að stríða og opinber skýring félagsins er sú að það sé betra fyrir hann að halda áfram í endurhæfingu á Melwood. Sú skýring heldur hinsvegar ekki alveg vatni því Lucas Leiva og Joe Gomez, sem báðir eru meiddir, verða áfram með hópnum í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að það sé nokkuð ljóst að þeir muni engan þátt taka í æfingaleikjunum.
Samkvæmt Liverpool Echo mun ástæðan fyrir heimsendingu Frakkans vera sú að Klopp líkaði ekki framferði hans á æfingasvæðinu. Það eru í rauninni mjög merkilegar fréttir því eftir því sem segir í Echo var Sakho einmitt tekinn með vegna þess hversu mikilvægur hann væri fyrir hópinn. Alltaf léttur á æfingasvæðinu.
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessu máli fram vindur
Nýlegar fréttir
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika!
Fréttageymslan

