| Sf. Gutt
Mamadou Sakho var ekki í leikmannahópi Liverpool í gær en ástæðan fyrir því var ekki gæfuleg. Frakkinn féll á lyfjaprófi sem tekið var eftir seinni leik Liverpool og Manchester United í Evrópudeildinni. Frakkinn mun hafa tekið fitubrennslutöflur sem innihalda eitthvað bannefni.
Mamadou getur farið fram á að annað sýni verði tekið og verði það samhljóða hinu fyrra fer hann að öllum líkindum í leikbann sem gæti verið frá hálfu ári upp í tvö ár. Annars er ómögulegt að segja til um refsingu í þessu.
Þetta kemur á versta tíma því undanúrslitin í Evrópudeildinni eru framundan og eins lokaspretturinn í deildinni. Mmadou var einmitt magnaður í sínum síðasta leik á móti Everton og skoraði þegar Liverpool hýddi granna sína. En líklega var það síðasti leikur hans og síðasta mark á þessari leiktíð. Eins er líklegt að Franski miðvörðurinn missi af EM í heimalandi sínu í sumar.
Hvernig sem á það er litið er þetta hið versta mál og með ólíkindum að Mamadou hafi fallið í þá gryfju að vita ekki hvað töflurnar innihéldu.
TIL BAKA
Mamadou í vondum málum
Mamadou Sakho var ekki í leikmannahópi Liverpool í gær en ástæðan fyrir því var ekki gæfuleg. Frakkinn féll á lyfjaprófi sem tekið var eftir seinni leik Liverpool og Manchester United í Evrópudeildinni. Frakkinn mun hafa tekið fitubrennslutöflur sem innihalda eitthvað bannefni. Mamadou getur farið fram á að annað sýni verði tekið og verði það samhljóða hinu fyrra fer hann að öllum líkindum í leikbann sem gæti verið frá hálfu ári upp í tvö ár. Annars er ómögulegt að segja til um refsingu í þessu.
Þetta kemur á versta tíma því undanúrslitin í Evrópudeildinni eru framundan og eins lokaspretturinn í deildinni. Mmadou var einmitt magnaður í sínum síðasta leik á móti Everton og skoraði þegar Liverpool hýddi granna sína. En líklega var það síðasti leikur hans og síðasta mark á þessari leiktíð. Eins er líklegt að Franski miðvörðurinn missi af EM í heimalandi sínu í sumar.
Hvernig sem á það er litið er þetta hið versta mál og með ólíkindum að Mamadou hafi fallið í þá gryfju að vita ekki hvað töflurnar innihéldu.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram! -
| Sf. Gutt
Illur grunur staðfestur -
| Sf. Gutt
Alexander Manninger látinn -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Anfield á eftir að hafa mikla þýðingu!
Fréttageymslan


