| Mummi

Árshátíð 2016 - Miðasala

Árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldin laugardaginn 9. apríl á Spot í Kópavogi.

Heiðursgestur kvöldsins verður enginn annar en Bruce Grobbelaar en hann þarf nú varla að kynna fyrir neinum hér á landi. Grobbelaar er einn allra frægasti markvörður í sögu félagsins og mun hann heiðra okkur Púllara með nærveru sinni þessa helgi.

Ásamt heiðursgestinum munu einnig Ragnhild Lund Ansnes, Björn Bragi og fleiri sjá um skemmta okkur langt fram á kvöld.

Upplýsingar um árshátíðina:

Við bjóðum uppá tvenns konar miða á árshátíðina í ár.

VIP miði: Aðeins 30 miðar í boði á 13.900 kr stk.
Innifalið: Fordrykkur með Bruce Grobbelaar og Ragnhild Lund Ansnes. Skemmtilegar sögur og persónuleg kynni. Eiginhandaáritanir og myndataka.
Hús opnar kl 18 fyrir VIP gest. Léttar veitingar í boði. 
Ath. Einungis í boði með því að senda tölvupóst á [email protected].

Almennur miði 8900 kr.
Hús opnar kl 19. Myndataka með Bruce Grobbelaar. Fordrykkur. Forréttur, steikarhlaðborð og skemmtiatriði á heimsmælikvarða.
Miðasala hér: http://www.liverpool.is/Club/AnnualFestival eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Dagsetning: 9. apríl 2016.

Staður: Spot í Kópavogi, heimavöllur okkar.

Heiðursgestir: Bruce Grobbelaar & Ragnhild Lund Ansnes

Uppistand frá Birni Braga

Matseðill: Forréttur - Steikarhlaðborð.

Húsið opnar kl. 19:00. Borðhald hefst. 19:45.

Þetta er viðburður sem hreinlega er ekki hægt að láta fram hjá sér fara!

YNWA
Stjórn Liverpoolklúbbsins á Íslandi
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan