| Sf. Gutt

Niðurtalning - 4. kapítuli

Leiðin á Wembley er búin að vera þyrnum stráð fyrir bæði lið. Það gekk á ýmsu áður en liðin náðu rétti á að ganga til leiks á nýja Wembley leikvanginum í Lundúnum.

+ Úrslitaleikir í stórkeppnum enskra liða voru leiknir á Wembley frá árinu 1923 til 2000 en þá var leikvanginum lokað og hann endurreistur á árunum þar á eftir. Frá 2001 og til 2006 voru úrslitaleikir um F.A. bikarinn, Deildarbikarinn og leikirnir um Góðgerðaskjöldinn leiknir á Árþúsundaleikvanginum í Cardiff. Reyndar fór úrslitaleikurinn um Deildarbikarinn 2007 fram í Cardiff en Wembley var tilbúinn þá um vorið.


+ Wembley leikvangurinn tekur 90.500 áhorfendur. Hann er stærsti leikvangur á Bretlandi og er talinn einn magnaðasti íþróttaleikvangur í heimi. Áhorfendur hafa mjög gott útsýni hvar sem þeir sitja. Leikvangurinn þykir vel heppnaður en þó hefur ekki gengið nógu vel að láta gras vaxa almennilega og það hefur þurft að tyrfa völlinn hvað eftir annað.

+ Svona gekk leiðin til Wembley fyrir sig hjá Liverpool og Manchester City.


3. umferð.

Liverpool : Carlisle United 1:1.

Mark Liverpool: Danny Ings.

Liverpool vann 3:2 í vítaspyrnukeppni.

Sunderland : Manchester City 1:4.



4. umferð.

Liverpool : Bournemouth 1:0.

Mark Liverpool: Nathaniel Clyne.
 

Manchester City 5 Crystal Palace 1.



Átta liða úrslit.

Southampton : Liverpool 6:1.

Mörk Liverpool: Divock Origi 3, Daniel Sturridge 2 og Jordan Ibe.


Manchester City : Hull City 4:1.



Undanúrslit 

Fyrri leikir


Stoke City : Liverpool 0:1.

Mark Liverpool: Jordan Ibe. 


Everton : Manchester City 2:1.







Seinni leikir

Liverpool : Stoke City 0:1.

Liverpool vann 6:5 í vítaspyrnukeppni. 


Manchester City : Everton 3:1.











                                                          
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan