| Sf. Gutt
Helst er talið að Lucas Leiva sé á förum frá Liverpool. Brasilíumaðurinn er einn leikreyndasti leikmaður liðsins en hann virðist ekki eiga framtíð fyrir sér hjá Liverpool.
Hann var ekki valinn í liðshóp Liverpool fyrir leikinn í Stoke eins og margir bjuggust við. Talið er að Brendan Rodgers hugsi sér yngri leikmann í að spila þá stöðu sem Lucas hefur leikið síðustu árin. Brasilíumaðurinn hefur verið varnarsinnaður miðjumaður og mjög góður í þeirri stöðu þegar hann hefur verið laus við meiðsli.
Luacs hefur ekkert sagt sjálfur um málið en talið er að honum hafi sárnað að hafa ekki verið valinn í liðshópinn fyrir leikinn á móti Stoke. Eins á hann að hafa verið óánægður með að hafa ekki verið skipaður varafyrirliði en Brendan valdi James Milner sem nýkominn er til félagsins í það hlutverk.
Talið er að félög á Ítalíu hafi áhuga á Lucas Leiva.
TIL BAKA
Lucas Leiva á förum?

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Bræðurnir Diogo og André bornir til grafar -
| Sf. Gutt
Diogo Jota látinn -
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir!
Fréttageymslan