| Sf. Gutt
Æfingaferð Liverpool til Ástralíu og Asíu er lokið. Nokkrir nýliða Liverpool fóru í ferðina og spiluðu fyrir framan fjölda áhorfenda á hinum og þessum leikvöngum í þremur löndum.
Einn nýliðanna, Nathaniel Clyne, segir magnaðar móttökur og góða aðsókn á leikjum sýna hversu stórt félag Liverpool er. Sérstaklega þótti honum magnað þegar fjöldi áhorfenda söng You´ll Never Walk Alone í Ástralíu.
,,Það var gott að sjá alla með trefla og fána á lofti syngja sönginn sinn. Þetta var góð tilfinning. Það er frábært að sjá alla þessa stuðningsmenn í Ástralíu og öðrum löndum. Þetta sýnir hversu stórt félagið er."
Nathaniel þótti standa sig vel í æfingaferðinni og telja má næsta víst að hann spili sem hægri bakvörður á komandi leiktíð. Vonandi gengur honum vel!
TIL BAKA
Sýnir hversu stórt félagið er!
Æfingaferð Liverpool til Ástralíu og Asíu er lokið. Nokkrir nýliða Liverpool fóru í ferðina og spiluðu fyrir framan fjölda áhorfenda á hinum og þessum leikvöngum í þremur löndum. Einn nýliðanna, Nathaniel Clyne, segir magnaðar móttökur og góða aðsókn á leikjum sýna hversu stórt félag Liverpool er. Sérstaklega þótti honum magnað þegar fjöldi áhorfenda söng You´ll Never Walk Alone í Ástralíu.
,,Það var gott að sjá alla með trefla og fána á lofti syngja sönginn sinn. Þetta var góð tilfinning. Það er frábært að sjá alla þessa stuðningsmenn í Ástralíu og öðrum löndum. Þetta sýnir hversu stórt félagið er."
Nathaniel þótti standa sig vel í æfingaferðinni og telja má næsta víst að hann spili sem hægri bakvörður á komandi leiktíð. Vonandi gengur honum vel!
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly
Fréttageymslan

