| Heimir Eyvindarson
Martin Hermannsson körfuboltasnillingur er mikill stuðningsmaður Liverpool. Hann spáir í spilin fyrir leik Liverpool og Stoke um helgina, velur sinn uppáhaldsleikmann o.s.frv.
Hvenær byrjaðir þú að halda með Liverpool?
Ég hef haldið með Liverpool frá því að ég man eftir mér. Pabbi og bróðir pabba eiga allan heiðurinn af því.
Hver er þinn uppáhaldsleikmaður Liverpool allra tíma?
Klárlega Suarez. Xabi Alonso er þó ekki langt undan.
Hver er í mestu uppáhaldi af núverandi leikmönnum liðsins?
Ég var að vona að Balotelli myndi heilla mig meira, en þessa stundina er það Raheem Sterling.
Ef þú mættir kaupa hvaða leikmann sem er til Liverpool, hver yrði þá fyrir valinu?
Messi! Þurfum ekki að vera að flækja það neitt. En ef ég á að vera raunsær þá myndi ég líklega reyna að ná í Shaqiri.
Hvernig fer leikurinn gegn Stoke á laugardaginn?
2-1. Gerrard og Sterling með mörkin.
Í hvaða sæti endar Liverpool í vor?
Ég held að með hjálp Sturridge og vonandi einhverjum kaupum í janúar þá náum við að rífa okkur upp og enda í topp sex að minnsta kosti. Ég segi 3.- 6. sæti.
TIL BAKA
Frægur fyrir leik

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Ungliðar á braut -
| Sf. Gutt
Það fengust peningar fyrir Trent
Fréttageymslan