| Sf. Gutt

Andy Carroll hefur, eins og félagar hans, mikinn hug á að vinna titil með Liverpool. Hann segist ekki geta beðið eftir úrslitaleiknum við Cardiff á sunnudaginn.
,,Þetta verður erfiður leikur. Það er ekki ástæðlaust að þeir eru líka komnir í úrslitaleikinn. Þeir hafa góðu liði á að skipa og þetta verður erfitt. Ég hlakka bara til að fara þangað og spila á móti þeim. Ég veit að þeir eru deild neðar en við en það er ástæða fyrir því að þeir eru komnir á Wembley. Við verðum að mæta til leiks með sama hugarfari og við værum að spila við Manchester United. Við verðum að einbeita okkur eins og þeir væru besta liðið sem við gætum mætt."
,,Ég er orðinn mjög spenntur og get ekki beðið eftir leiknum. Það gildir um alla hina strákana. Þetta getur ekki betra verið. Liverpool er að spila í bikarúrslitaleik á Wembley. Ég kom hingað til að vinna verðlaunapeninga. Það var frábært að komast á Wembley en vonandi tekst okkur að fullkomna verkið og vinna sigur þar!"
Andy Carroll hefur verið að styrkjast í síðustu leikjum og hver veit nema hann láti hressilega að sér kveða á Wembley gegn Cardiff City!
TIL BAKA
Kom til Liverpool til að vinna titla!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Í minningu Diogo Jota -
| Sf. Gutt
Bræðurnir Diogo og André bornir til grafar -
| Sf. Gutt
Diogo Jota látinn -
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut
Fréttageymslan