| Heimir Eyvindarson
Steven Gerrard fer alveg að komast á ferðina aftur. Kenny Dalglish er þó varfærinn, en útilokar ekki að fyrirliðinn verði með á annan í jólum.
Liverpool mætir Blackburn á annan dag jóla og leikmennirnir verða eflaust staðráðnir í því að gera betur en gegn Wigan á sunnudaginn.
Það styttist í endurkomu fyrirliðans og hver veit nema hann geti verið með í jólafjörinu. Kenny Dalglish útilokar allavega ekkert í þeim efnum.
,,Gerrard er byrjaður að æfa og hann lítur vel út. Ég þori samt ekki að lofa því að hann verði með gegn Blackburn. Við munum þó ekki taka neina óþarfa áhættu."
,,Það meiddist enginn gegn Wigan og Jay (Spearing) er búinn að sitja af sér bannið þannig að það eru fleiri en færri í hópnum núna."
Steven Gerrard hefur verið frá keppni vegna sýkingar í ökkla frá því í lok október og stuðningsmenn Liverpool eru orðnir langeygir eftir fyrirliðanum. Það væri ekki amaleg jólagjöf til stuðningsmanna að sjá hann í búningi á Anfield á mánudagskvöldið.
TIL BAKA
Steven í hópnum annan í jólum?

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Bræðurnir Diogo og André bornir til grafar -
| Sf. Gutt
Diogo Jota látinn -
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir!
Fréttageymslan