| Sf. Gutt
Segja má að bakvörðurinn efnilegi Jon Flanagan hafi færst upp í enska landsliðinu. Hann er nú kominn í undir 21. árs liðið en hann hefur áður leikið með öðrum yngri landsliðum Englands.
Þeir Martin Kelly, Jordan Henderson og Jonjo Shelvey eru líka í landsliðshópnum. Liverpool á því tvo hægri bakverði í liðinu og verður það að teljast merkilegt! Reyndar var Jon ekki í upphaflega liðinu en hann kom inn í það vegna forfalla. Hann er búinn að spila þrjá leiki með aðalliði Liverpool á leiktíðinni.
Enska landsliðið leikur tvo leiki á næstu dögum og er sá fyrri gegn Íslandi 6. október og fáum við því gott tækifæri á að sjá Rauðliðana. Hinn leikurinn er gegn Norðmönnum 11. október.
Þess má geta að Andy Carroll og Stewart Downing voru valdir í enska aðalliðið.
TIL BAKA
Jon færist upp í landsliðinu
Segja má að bakvörðurinn efnilegi Jon Flanagan hafi færst upp í enska landsliðinu. Hann er nú kominn í undir 21. árs liðið en hann hefur áður leikið með öðrum yngri landsliðum Englands.Þeir Martin Kelly, Jordan Henderson og Jonjo Shelvey eru líka í landsliðshópnum. Liverpool á því tvo hægri bakverði í liðinu og verður það að teljast merkilegt! Reyndar var Jon ekki í upphaflega liðinu en hann kom inn í það vegna forfalla. Hann er búinn að spila þrjá leiki með aðalliði Liverpool á leiktíðinni.
Enska landsliðið leikur tvo leiki á næstu dögum og er sá fyrri gegn Íslandi 6. október og fáum við því gott tækifæri á að sjá Rauðliðana. Hinn leikurinn er gegn Norðmönnum 11. október.
Þess má geta að Andy Carroll og Stewart Downing voru valdir í enska aðalliðið.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt!
Fréttageymslan

