| Heimir Eyvindarson
Liverpool hefur samþykkt tilboð franska liðsins Evian í danska landsliðsmannin Christian Poulsen. Þetta var tilkynnt á opinberri heimasíðu Liverpool fyrir stundu.
Ekkert hefur enn verið gefið upp um kaupverð, en á heimasíðu Liverpool segir að félagið hafi gefið franska félaginu, sem heitir fullu nafni Evian Thonon Gaillard og komst upp í efstu deild á síðustu leiktíð, leyfi til þess að ræða við Poulsen.
Það var Roy Hodgson sem fékk Poulsen til Liverpool til að fylla skarð Javier Mascherano aftast á miðjunni, en óhætt er að segja að Daninn hafi ekki átt sjö dagana sæla á Anfield eftir að Kenny Dalglish tók við af Hodgson. Því verður að teljast líklegt að hann grípi tækifærið til að komast til annars liðs fegins hendi.
TIL BAKA
Christian Poulsen til Evian?
Liverpool hefur samþykkt tilboð franska liðsins Evian í danska landsliðsmannin Christian Poulsen. Þetta var tilkynnt á opinberri heimasíðu Liverpool fyrir stundu.Ekkert hefur enn verið gefið upp um kaupverð, en á heimasíðu Liverpool segir að félagið hafi gefið franska félaginu, sem heitir fullu nafni Evian Thonon Gaillard og komst upp í efstu deild á síðustu leiktíð, leyfi til þess að ræða við Poulsen.
Það var Roy Hodgson sem fékk Poulsen til Liverpool til að fylla skarð Javier Mascherano aftast á miðjunni, en óhætt er að segja að Daninn hafi ekki átt sjö dagana sæla á Anfield eftir að Kenny Dalglish tók við af Hodgson. Því verður að teljast líklegt að hann grípi tækifærið til að komast til annars liðs fegins hendi.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim!
Fréttageymslan

