| Heimir Eyvindarson
Svo virðist sem góður samningur David Ngog við Liverpool geti orðið til þess að ekkert verði af því að Sunderland kaupi hann í sumar.
Viðræður milli Sunderland og Ngog eru við það að sigla í strand vegna þess að Sunderland telur sig ekki hafa efni á að borga leikmanninum þau laun sem hann fer fram á.
Það er staðarblaðið The Journal í Norður-Englandi sem greinir frá þessu í dag og segir að ástæðan sé sú að í samningi Ngog við Liverpool sé gert ráð fyrir að laun hans hækki verulega á næsta tímabili.
Í frétt blaðsins segir að Ngog hafi farið fram á að Sunderland borgi honum svipuð laun og hann kemur til með að hafa á næstu leiktíð, verði hann kyrr hjá Liverpool, en það munu forráðamenn Sunderland ekki vera tilbúnir að gera. Blaðið segir jafnframt að það skilji mæta vel að Liverpool vilji losa sig við hinn 22 ára Frakka áður en launahækkunin tekur gildi.
Samkvæmt heimildum blaðsins mun Sunderland hafa farið fram á að Liverpool slái af kaupverðinu til þess að hægt sé að mæta launakröfum Ngog.
Þrátt fyrir þennan afturkipp í samningaviðræðunum eru forráðamenn Sunderland vongóðir um að David verði kominn í þeirra raðir innan fárra daga, ef eitthvað er að marka heimildirnar að norðan.
TIL BAKA
David Ngog gerir of miklar launakröfur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Diogo Jota látinn -
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé!
Fréttageymslan