| Sf. Gutt
Einhverjir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að Fernando Torres hafi hug á því að yfirgefa Liverpool núna áður en lokað verður fyrir félagaskipti.
Eins og fram kom í fjölmiðlum í morgun þá hafnaði Liverpool tilboði í Fernando frá Chelsea. Það tilboð á að hafa verið um 35 milljónir sterlingspunda.
En samkvæmt fyrrnefndum fréttum, til dæmis á Sky sports og vefsíðu Guardian, þá á Fernando að hafa beðið forráðamenn Liverpool í dag um að hafa samband við Chelsea með það í huga að selja hann. Ekki eitt einasta orð hefur komið úr herbúðum Liverpool Football Club um þetta mál.
Hvað sem hæft er í þessu þá væri hægt að selja Fernando því nú hefur verið gengið frá kaupum á Luis Suarez. Fjölmiðlar hafa hamrað á meintri óánægju Fernando Torres allt frá því í sumar og hefur líkamstjáning hans aðallega verið heimildin. Þrátt fyrir þær fréttir hefur ekki verið talið að Fernando vilji fara núna og hann sagði fyrr í þessum mánuði að hann ætlaði að vera áfram hjá Liverpool.
Það væri þó ólíkt betra að hafa þá báða, Fernando og Luis, í sókninni hjá Liverpool en séu menn ekki ánægðir er best að selja þá hvað svo sem þeir heita.
TIL BAKA
Fer Fernando núna frá Liverpool?
Einhverjir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að Fernando Torres hafi hug á því að yfirgefa Liverpool núna áður en lokað verður fyrir félagaskipti.Eins og fram kom í fjölmiðlum í morgun þá hafnaði Liverpool tilboði í Fernando frá Chelsea. Það tilboð á að hafa verið um 35 milljónir sterlingspunda.
En samkvæmt fyrrnefndum fréttum, til dæmis á Sky sports og vefsíðu Guardian, þá á Fernando að hafa beðið forráðamenn Liverpool í dag um að hafa samband við Chelsea með það í huga að selja hann. Ekki eitt einasta orð hefur komið úr herbúðum Liverpool Football Club um þetta mál.
Hvað sem hæft er í þessu þá væri hægt að selja Fernando því nú hefur verið gengið frá kaupum á Luis Suarez. Fjölmiðlar hafa hamrað á meintri óánægju Fernando Torres allt frá því í sumar og hefur líkamstjáning hans aðallega verið heimildin. Þrátt fyrir þær fréttir hefur ekki verið talið að Fernando vilji fara núna og hann sagði fyrr í þessum mánuði að hann ætlaði að vera áfram hjá Liverpool.
Það væri þó ólíkt betra að hafa þá báða, Fernando og Luis, í sókninni hjá Liverpool en séu menn ekki ánægðir er best að selja þá hvað svo sem þeir heita.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Alexander Isak frá næstu mánuði -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur
Fréttageymslan

