| Sf. Gutt
Kenny Dalglish stjórnar Liverpool í fyrsta sinn í Musterinu eftir endurkomu sína í dag þegar Liverpool tekur á móti Everton. Hann er búinn að velja þá sem verja heiður Liverpool í þessum mikilvæga grannaslag og það verður að segjast að val hans kemur að einu mjög á óvart.
Kenny hefur ákvaðið að skella ungliðanum Jay Spearing í byrjunarliðið en varla hefur nokkur maður átt von á því. Jay lék sinn fyrsta leik núna í vikunni eftir að hafa verið nokkrar vikur frá vegna meiðsla þegar varalið Liverpool vann Sunderland 2:1 í æfingaleik. Hann er því ekki í leikæfingu auk þess að vera óreyndur.
Annar ungliði, Martin Kelly, heldur stöðu sinni sem hægri bakvörður og er það vel. Hann er búinn að standa sig mjög vel í þeirri stöðu í síðustu leikjum.
Þetta er liðið í heild sinni: Reina, Kelly, Johnson, Skrtel, Agger, Meireles, Leiva, Spearing, Rodriguez, Kuyt og Torres. Varamenn eru þeir Gulacsi, Kyrgiakos, Cole, Aurelio, Shelvey, Pacheco og Babel.
Þeir Milan Jovanovic og David Ngog eru ekki leikfærir en þeir voru í liðshópnum gen Blackpool á miðvikudaginn. Joe Cole er á hinn bóginn tilbúinn í slaginn. Daniel Pacheco lék mjög vel með varaliðinu í fyrrnefndum leik og fær sæti á bekknum.
TIL BAKA
Kenny búinn að velja
Kenny Dalglish stjórnar Liverpool í fyrsta sinn í Musterinu eftir endurkomu sína í dag þegar Liverpool tekur á móti Everton. Hann er búinn að velja þá sem verja heiður Liverpool í þessum mikilvæga grannaslag og það verður að segjast að val hans kemur að einu mjög á óvart. Kenny hefur ákvaðið að skella ungliðanum Jay Spearing í byrjunarliðið en varla hefur nokkur maður átt von á því. Jay lék sinn fyrsta leik núna í vikunni eftir að hafa verið nokkrar vikur frá vegna meiðsla þegar varalið Liverpool vann Sunderland 2:1 í æfingaleik. Hann er því ekki í leikæfingu auk þess að vera óreyndur.
Annar ungliði, Martin Kelly, heldur stöðu sinni sem hægri bakvörður og er það vel. Hann er búinn að standa sig mjög vel í þeirri stöðu í síðustu leikjum.
Þetta er liðið í heild sinni: Reina, Kelly, Johnson, Skrtel, Agger, Meireles, Leiva, Spearing, Rodriguez, Kuyt og Torres. Varamenn eru þeir Gulacsi, Kyrgiakos, Cole, Aurelio, Shelvey, Pacheco og Babel.
Þeir Milan Jovanovic og David Ngog eru ekki leikfærir en þeir voru í liðshópnum gen Blackpool á miðvikudaginn. Joe Cole er á hinn bóginn tilbúinn í slaginn. Daniel Pacheco lék mjög vel með varaliðinu í fyrrnefndum leik og fær sæti á bekknum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

