| Sf. Gutt
Kenny Dalglish hefur ekki áhyggjur af því að Fernando Torres muni ekki komast í gang. Hann var spurður út í Fernando á blaðamannafundinum í gær og byrjaði á að grínast!
,,Hann er búinn að vera frábær í leikjunum sem ég hef stjórnað! Hann var einn í sókninni og lagði sig fullkomlega fram. Það spurði mig einhver í gær hvort ég ætti töfrasprota. Ég þarf engann slíkan því hann á einn sjálfur. Hann er ennþá sóknarmaður í hæsta gæðaflokki og allir óttast hann þegar hann kemur út á völlinn."
,,Þetta knattspyrnufélag hefur aldrei snúist um einn einstakling. Það snýst um samstöðu og lið og við erum lið. Hér er enginn einhver ég. Við þurfum að hjálpa Fernando eins mikið og við getum en við þurfum líka að hjálpa hvor öðrum."
Fernando Torres hefur ekki verið líkur sjálfum sér á þessu keppnistímabili og nú er sjá hvort Kenny Dalglish og samstarfsmenn hans geta fært líf í leik hans.
TIL BAKA
Við munum hjálpa Fernando
Kenny Dalglish hefur ekki áhyggjur af því að Fernando Torres muni ekki komast í gang. Hann var spurður út í Fernando á blaðamannafundinum í gær og byrjaði á að grínast! ,,Hann er búinn að vera frábær í leikjunum sem ég hef stjórnað! Hann var einn í sókninni og lagði sig fullkomlega fram. Það spurði mig einhver í gær hvort ég ætti töfrasprota. Ég þarf engann slíkan því hann á einn sjálfur. Hann er ennþá sóknarmaður í hæsta gæðaflokki og allir óttast hann þegar hann kemur út á völlinn."
,,Þetta knattspyrnufélag hefur aldrei snúist um einn einstakling. Það snýst um samstöðu og lið og við erum lið. Hér er enginn einhver ég. Við þurfum að hjálpa Fernando eins mikið og við getum en við þurfum líka að hjálpa hvor öðrum."
Fernando Torres hefur ekki verið líkur sjálfum sér á þessu keppnistímabili og nú er sjá hvort Kenny Dalglish og samstarfsmenn hans geta fært líf í leik hans.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Alexander Isak loksins kominn til leiks! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Arne Slot er undir pressu! -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool! -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp lítur við heima!
Fréttageymslan


