| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Dalglish í Dubai!
Kenny Dalglish var á skemmtiferðaskipi í Persaflóanum þegar hann var beðinn að taka tímabundið við starfi framkvæmdastjóra Liverpool. Hann tók auðvitað fyrsta flug heim til Englands!

Kenny Dalglish hefur verið á skemmtisiglingu við Mið - austurlönd ásamt fjölskyldu sinni undanfarna daga. Þegar eigendur Liverpool höfðu samband við hann var hann staddur á skemmtiferðaskipi úti á miðjum Persaflóa! Kenny brást auðvitað skjótt við og tók fyrsta flug heim frá Dubai. Það að Kenny Dalglish hafi verið staddur úti á sjó í gær sýnir hversu atburðarásin, varðandi brottför Roy Hodgson, var hröð.
Kenny verður kominn heim í tíma til að stjórna liði Liverpool í bikarleiknum gegn erkifjendunum í Manchester United á morgun.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Spánverjar heimsmeistarar! -
| Sf. Gutt
Dominik Szoboszlai verður um kyrrt! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Aftur til æfinga -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool! -
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones!
Fréttageymslan