| Sf. Gutt
Fernando Torres meiddist á ökkla í tapleiknum gegn Stoke á laugardaginn. Hann er samt í spænska landsliðhópnum sem er að undirbúa sig fyrir vináttuleik gegn Portúgal á miðvikudagskvöldið.
Hermt var á Liverpoolfc.tv að læknalið spænska landsliðsins myndi meta hvort Fernando væri leikfær þegar kæmi að landsleiknum. Nokkuð undarlegt verður að teljast að forráðmenn Liverpool hafi ekki einfaldlega tilkynnt forföll fyrir Fernando fyrir þennan þýðingarlitla vináttulandsleik.
Roy Hodgson sagði, eftir leikinn við Stoke, að Fernando hefði meiðst á ökkla. Þjálfarar Liverpool vildu taka hann af velli en Fernando harkaði af sér og vildi ljúka leiknum sem hann og gerði.
Það er vonandi að Fernando Torres verði til í slaginn þegar Liverpool leikur sinn næsta leik en liðið mætir West Ham United á laugardaginn kemur.
TIL BAKA
Fernando tæpur vegna meiðsla
Fernando Torres meiddist á ökkla í tapleiknum gegn Stoke á laugardaginn. Hann er samt í spænska landsliðhópnum sem er að undirbúa sig fyrir vináttuleik gegn Portúgal á miðvikudagskvöldið. Hermt var á Liverpoolfc.tv að læknalið spænska landsliðsins myndi meta hvort Fernando væri leikfær þegar kæmi að landsleiknum. Nokkuð undarlegt verður að teljast að forráðmenn Liverpool hafi ekki einfaldlega tilkynnt forföll fyrir Fernando fyrir þennan þýðingarlitla vináttulandsleik.
Roy Hodgson sagði, eftir leikinn við Stoke, að Fernando hefði meiðst á ökkla. Þjálfarar Liverpool vildu taka hann af velli en Fernando harkaði af sér og vildi ljúka leiknum sem hann og gerði.
Það er vonandi að Fernando Torres verði til í slaginn þegar Liverpool leikur sinn næsta leik en liðið mætir West Ham United á laugardaginn kemur.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Arne Slot er undir pressu! -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool! -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp lítur við heima! -
| Sf. Gutt
Liverpool mætir Evrópumeisturunum! -
| Sf. Gutt
Allt eða ekkert!
Fréttageymslan


