| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Flestir klárir fyrir morgundaginn
Roy Hodgson sagði í viðtali við Sky Sports í dag að hann reiknaði með því að geta stillt upp sínu sterkasta liði gegn W.B.A. á morgun, að Joe Cole undanskildum en hann er í leikbanni.

Steven Gerrard og Daniel Agger eru á góðri leið með að ná sér eftir meiðsli. Gerrard eftir bakmeiðsli og Agger eftir heilahristing. Þá eru Fernando Torres og Milan Jovanovic klárir í slaginn, en þeir voru hvíldir á fimmtudaginn þegar liðið mætti Trabzonspor í Tyrklandi.
,,Það verður gott að spila heima aftur og vonandi verða allir leikmennirnir sem við urðum að skilja eftir heima á fimmtudaginn klárir í slaginn", segir Hodgson.
,,Að vísu er ekki víst að Maxi Rodriguez verði búinn að ná sér, en hann hefur átt við veikindi að stríða undanfarna daga."
,,Leikurinn á fimmtudaginn var mjög erfiður. Völlurinn var þungur og andstæðingurinn og áhorfendur fremur fjandsamlegir. Ég er feginn að við fórum ekki með sama lið og spilaði leikinn gegn City til Tyrklands. Það verður gott að fá nokkra fríska og sterka leikmenn inn í liðið á morgun. Það virðast allir vera frískir, nema kannski Maxi. Og svo er Joe Cole auðvitað ennþá í banni."

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki!
Fréttageymslan