Verð að standa mig!
Daninn Christian Poulsen er orðinn leikmaður Liverpool en gengið var frá vistaskiptum hans frá Juventus í gær.Christian er kominn í nýtt land en hann rennir ekki alveg blint í sjóinn. Hann þekkir nefnilega vel til nýja framkvæmdastjóra Liverpool en Roy Hodgson var framkvæmdastjóri F.C. Kaupmannahafnar þegar Christian var á mála þar.
,,Ég vann með honum í tvö ár. Það voru góð ár og ég vona að framhald verði á góðri samvinnu okkar. Vonandi verður hann ánægður með hvað ég get gert. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri um allan heim og býr yfir mikilli reynslu. Ég ber mikla virðingu fyrir honum."
Roy þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að sannfæra Danann um að Liverpool væri vænlegur kostur sem næsti viðkomustaður á ferli þessa sterka miðjumanns.
,,Roy þurfti ekki að segja mér mjög mikið því Liverpool Football Club er þekkt um allan heim. Liverpool er vinsælasta enska liðið í Danmörku."
En hverjir eru helstu styrkleikar frænda okkar? Hann svarar því á þennan hátt.
,,Ég tel að ég hafi góðan leikskilning og góða tækni. Ég myndi segja að ég væri leikmaður sem reynir að leika léttleikandi knattspyrnu en ég er líka óhræddur við að fara í návígi. Ég veit að ég þarf að sanna mig almennilega hérna. Það þýðir ekki annað en að standa sig þegar maður er kominn til félags á borð við Liverpool. Ég vona að ég geti sýnt hjá Liverpool að ég sé góður leikmaður."
-
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur -
| Sf. Gutt
Hvað gerist næst? -
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Mohamed skilinn eftir heima í Liverpool! -
| Sf. Gutt
Allt í uppnámi eftir hörð orð Mohamed Salah! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Í minningu

