| Sf. Gutt
Dirk Kuyt kom Liverpool í 2:1 gegn West Ham á laugardaginn þegar hann fylgdi eftir skalla Steven Gerrard. Hugsanlega hefði boltinn farið í markið en Dirk sá um að koma boltanum rétta boðleið. Hann hefur samt sagt að hann sé tilbúinn að gefa Steven markið!
"Skallinn frá Stevie var frábær og ég var tilbúinn við fjærstöngina ef boltinn myndi fara framhjá. Mér fannst ég snerta boltann en ef við gætum gefið Steve markið þá myndi ég glaður gera það. Auðvitað er það gott að skora og þá sérstaklega fyrir sóknarmenn en ég segi enn og aftur að mér finnst að Stevie verðskuldi markið frekar en ég."
Það er sannarlega fágætt að sóknarmaður vilji gefa öðrum leikmanni mark sem hann hefur sjálfur skorað. Markið gegn West Ham er fjórða markið sem Dirk skorar á keppnistímabilinu og hann hefur skorað mörg mörk á ferlinum. En Hollendingurinn verður seint sakaður um eigingirni.
TIL BAKA
Dirk vill gefa markið sitt!
Dirk Kuyt kom Liverpool í 2:1 gegn West Ham á laugardaginn þegar hann fylgdi eftir skalla Steven Gerrard. Hugsanlega hefði boltinn farið í markið en Dirk sá um að koma boltanum rétta boðleið. Hann hefur samt sagt að hann sé tilbúinn að gefa Steven markið!"Skallinn frá Stevie var frábær og ég var tilbúinn við fjærstöngina ef boltinn myndi fara framhjá. Mér fannst ég snerta boltann en ef við gætum gefið Steve markið þá myndi ég glaður gera það. Auðvitað er það gott að skora og þá sérstaklega fyrir sóknarmenn en ég segi enn og aftur að mér finnst að Stevie verðskuldi markið frekar en ég."
Það er sannarlega fágætt að sóknarmaður vilji gefa öðrum leikmanni mark sem hann hefur sjálfur skorað. Markið gegn West Ham er fjórða markið sem Dirk skorar á keppnistímabilinu og hann hefur skorað mörg mörk á ferlinum. En Hollendingurinn verður seint sakaður um eigingirni.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki!
Fréttageymslan

