| Sf. Gutt
Dirk Kuyt skoraði sigurmark Liverpool gegn ungverska liðinu Debrecen í gærkvöldi. Rafael Benítez var eins og svo oft áður ánægður með sinn mann.
"Dirk er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann er mjög góður sóknarmaður og svo getur hann spilað á hægri vængnum eða inni á miðjunni. Vegna þess hversu duglegur hann er þá skapar hann alltaf hættu hvar svo sem hann spilar á vellinum. Hann er alltaf vakandi í vítateignum tilbúinn að ná fráköstum þegar markmenn missa boltann eftir skot."
"Hann er alltaf vel á verði og hefur góðan leikskilning. Hann hefur oft skorað mörk, með því að hirða fráköst í vítateignum, eins og hann gerði gegn Debrecen. Ég veit að hann á eftir að gera þetta oft í framtíðinni og það má stóla á að hann geri það."
Dirk Kuyt hefur verið iðinn við að skora fyrir Liverpool í Evrópukeppni og markið sem hann skoraði í gærkvöldi var tólfta Evrópumark hans. Alls hefur hann skorað 43 mörk fyrir Rauða herinn.
Dirk hefur leikið vel það sem af er keppnistímabilsins og markið hans í gærkvöldi var þriðja markið sem hann skorar. Hollendingurinn virðist því ætla að halda áfram á sömu braut og á síðustu sparktíð þegar hann lék frábærlega.
TIL BAKA
Rafa hælir Dirk
Dirk Kuyt skoraði sigurmark Liverpool gegn ungverska liðinu Debrecen í gærkvöldi. Rafael Benítez var eins og svo oft áður ánægður með sinn mann. "Dirk er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann er mjög góður sóknarmaður og svo getur hann spilað á hægri vængnum eða inni á miðjunni. Vegna þess hversu duglegur hann er þá skapar hann alltaf hættu hvar svo sem hann spilar á vellinum. Hann er alltaf vakandi í vítateignum tilbúinn að ná fráköstum þegar markmenn missa boltann eftir skot."
"Hann er alltaf vel á verði og hefur góðan leikskilning. Hann hefur oft skorað mörk, með því að hirða fráköst í vítateignum, eins og hann gerði gegn Debrecen. Ég veit að hann á eftir að gera þetta oft í framtíðinni og það má stóla á að hann geri það."
Dirk Kuyt hefur verið iðinn við að skora fyrir Liverpool í Evrópukeppni og markið sem hann skoraði í gærkvöldi var tólfta Evrópumark hans. Alls hefur hann skorað 43 mörk fyrir Rauða herinn.
Dirk hefur leikið vel það sem af er keppnistímabilsins og markið hans í gærkvöldi var þriðja markið sem hann skorar. Hollendingurinn virðist því ætla að halda áfram á sömu braut og á síðustu sparktíð þegar hann lék frábærlega.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Jeremine Frimpong meiddur -
| Sf. Gutt
Vildi sýna öllum virðingu -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Curtis með met! -
| Sf. Gutt
Stórsigur í Þýskalandi! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch meiddur -
| Sf. Gutt
Meiðslafréttir -
| Sf. Gutt
Jafnt í fyrsta leik ársins -
| Sf. Gutt
Matt Beard borinn til grafar -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu
Fréttageymslan

