| Sf. Gutt
        
             John Arne Riise lék með Alberto Aquilani hjá Roma á síðasta keppnistímabili. Alberto hefur enn ekki komist í gang hjá Liverpool en sá norski hefur trú á þeim ítalska. John Arne segir að Alberto hafi strax vakið mikla athygli sína.

"Ég þekkti ekkert til Aquilani þegar ég kom fyrst til Roma en hann var sá leikmaður sem kom mér mest á óvart á fyrstu mánuðum mínum hérna. Hann var mjög góður, knatttækni hans var afbragð, hann spilaði boltanum vel og var hreyfanlegur. Hann var líka duglegur og mikill fagmaður."
"Hann vildi alltaf vera með boltann en ekki vegna þess að hann vildi vera að einleika. Það var miklu frekar vegna þess að hann vildi alltaf vera á ferðinni og halda leiknum gangandi. Hann hleypur meira en Xabi og er trúlega hættulegri inni í vítateig andstæðinganna því hann er marksækinn."
 
“Hann var nágranni minn þegar ég fluttist til Rómar. Hann reyndist mér hjálplegur og góður vinur. Liverpool hefur fengið mjög góðan leikmann í sínar raðir. Allir geta aðlagast nýjum aðstæðum og Alberto er ákveðinn í að nýta þá hæfileika sem hann býr yfir og sanna sig."
Þetta er sannarlega góð umsögn sem John Arne Riise gefur Alberto Aquilani og vonandi á hún eftir að reynast á rökum reist. Alberto hefur enn ekki náð sér á strik hjá Liverpool enda ekki komin í almennilega æfingu eftir langvarandi meiðsli. En ef marka má orð John Arne þá hefur Ítalinn alla burði til að láta til sín taka hjá Liverpool.
        
        TIL BAKA
    
John Arne hefur trú á Alberto
 John Arne Riise lék með Alberto Aquilani hjá Roma á síðasta keppnistímabili. Alberto hefur enn ekki komist í gang hjá Liverpool en sá norski hefur trú á þeim ítalska. John Arne segir að Alberto hafi strax vakið mikla athygli sína.
John Arne Riise lék með Alberto Aquilani hjá Roma á síðasta keppnistímabili. Alberto hefur enn ekki komist í gang hjá Liverpool en sá norski hefur trú á þeim ítalska. John Arne segir að Alberto hafi strax vakið mikla athygli sína.  "Ég þekkti ekkert til Aquilani þegar ég kom fyrst til Roma en hann var sá leikmaður sem kom mér mest á óvart á fyrstu mánuðum mínum hérna. Hann var mjög góður, knatttækni hans var afbragð, hann spilaði boltanum vel og var hreyfanlegur. Hann var líka duglegur og mikill fagmaður."
"Hann vildi alltaf vera með boltann en ekki vegna þess að hann vildi vera að einleika. Það var miklu frekar vegna þess að hann vildi alltaf vera á ferðinni og halda leiknum gangandi. Hann hleypur meira en Xabi og er trúlega hættulegri inni í vítateig andstæðinganna því hann er marksækinn."
“Hann var nágranni minn þegar ég fluttist til Rómar. Hann reyndist mér hjálplegur og góður vinur. Liverpool hefur fengið mjög góðan leikmann í sínar raðir. Allir geta aðlagast nýjum aðstæðum og Alberto er ákveðinn í að nýta þá hæfileika sem hann býr yfir og sanna sig."
Þetta er sannarlega góð umsögn sem John Arne Riise gefur Alberto Aquilani og vonandi á hún eftir að reynast á rökum reist. Alberto hefur enn ekki náð sér á strik hjá Liverpool enda ekki komin í almennilega æfingu eftir langvarandi meiðsli. En ef marka má orð John Arne þá hefur Ítalinn alla burði til að láta til sín taka hjá Liverpool.
Nýlegar fréttir
        - 
                         | Sf. Gutt
 Óheppnasti leikmaður í heimi?
- 
                         | Sf. Gutt
 Úr leik!
- 
                         | Sf. Gutt
 Verðum að leggja harðar að okkur!
- 
                         | Sf. Gutt
 Jeremine Frimpong meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Vildi sýna öllum virðingu
- 
                         | Sf. Gutt
 Alisson meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Curtis með met!
- 
                         | Sf. Gutt
 Stórsigur í Þýskalandi!
- 
                         | Sf. Gutt
 Ryan Gravenberch meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Meiðslafréttir
Fréttageymslan