| Sf. Gutt
Talsmaður Real Madrid segir að Xabi Alonso sé of dýr fyrir félagið. Talsmaðurinn segir Liverpool vilja fá of háa upphæð fyrir hann en samkvæmt vefmiðlum hljóðar sú upphæð upp á 35 milljónir sterlingspunda.
Jorge Valdano talsmaður Real Madrid hafði þetta að segja. "Við viljum endilega fá Xabi Alonso ef við höfum efni á honum en það virðist ekki vera svo. Það sem við viljum borga er miklu minna en það verð sem Liverpool hefur sett upp. Liverpool hefur sett okkur í erfiða aðstöðu."
Hingað til hefur ekki verið talið að Real hafi gert Liverpool formlegt tilboð í Xabi. Samkvæmt því sem Jorge segir þá virðast einhver samskipti hafa átt sér stað milli félaganna. Eitt er þó ljóst og það er að framtíð Xabi Alonso hjá Liverpool er enn óljós.
TIL BAKA
Xabi of dýr fyrir Real
Talsmaður Real Madrid segir að Xabi Alonso sé of dýr fyrir félagið. Talsmaðurinn segir Liverpool vilja fá of háa upphæð fyrir hann en samkvæmt vefmiðlum hljóðar sú upphæð upp á 35 milljónir sterlingspunda. Jorge Valdano talsmaður Real Madrid hafði þetta að segja. "Við viljum endilega fá Xabi Alonso ef við höfum efni á honum en það virðist ekki vera svo. Það sem við viljum borga er miklu minna en það verð sem Liverpool hefur sett upp. Liverpool hefur sett okkur í erfiða aðstöðu."
Hingað til hefur ekki verið talið að Real hafi gert Liverpool formlegt tilboð í Xabi. Samkvæmt því sem Jorge segir þá virðast einhver samskipti hafa átt sér stað milli félaganna. Eitt er þó ljóst og það er að framtíð Xabi Alonso hjá Liverpool er enn óljós.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Alexander Isak frá næstu mánuði -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur
Fréttageymslan

