| Sf. Gutt
Rafael Benítez segir að leikmenn Liverpool verði að halda í trúna á að liðið geti unnið Englandsmeistaratitilinn. Næsta skref í baráttunni er að vinna West Ham United í dag.
"Við verðum að skila okkar verki með því að ná þremur stigum. Þið vitið hvernig ég hugsa þetta. Við verðum að ná þremur stigum, halda áfram að vinna, þjarma að þeim og sjá svo hvað gerist. Maður veit aldrei hvað á eftir að gerast. Við erum í góðri stöðu og erum ánægðir með okkur. Við erum búnir að afla okkur mjög góðrar reynslu og það á eftir að koma okkur til góða í framtíðinni ef við verðum með í baráttunni allt til loka leiktíðarinnar. Við verðum þó að trúa því að við getum unnið á þessu ári."
Liverpool getur komist í efsta sæti deildarinnar í dag því Manchester United spilar ekki fyrr en á morgun þegar liðið mætir grönnum sínum Manchester City. Rafa vonast eftir greiða frá City.
"Það gæti orðið erfiður leikur fyrir þá en United er með gott lið og sterka leikmenn. Maður veit aldrei en við verðum að minnsta kosti að vinna okkar leiki. Málið er mjög einfalt."
TIL BAKA
Höldum í trúna á titilinn

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Ungliðar á braut -
| Sf. Gutt
Það fengust peningar fyrir Trent
Fréttageymslan