| Grétar Magnússon
Steven Gerrard mun ekki spila gegn Arsenal næstkomandi þriðjudagskvöld en búist var við því að fyrirliðinn myndi vera klár í þann leik.
Gerrard á við meiðsli á læri að stríða og á æfingu fyrir leikinn við Chelsea í síðustu viku urðu meiðslin örlítið alvarlegri sem þýðir að Gerrard mun vera lengur á sjúkralistanum en upphaflega var talið.
Talsmaður félagsins staðfesti þetta: ,,Á æfingu fyrir leikinn við Chelsea í Meistaradeildinni urðu meiðsli Steven Gerrard enn verri. Gerrard fór í skoðun sem staðfesti það sem læknaliðið bjóst við og verður hann frá í viku til tíu daga. Gerrard mun halda áfram að vera í stífri sjúkraþjálfun á Melwood."
Fjarvera Steven Gerrard veikir vissulega liðið en leikmennirnir ættu ekki að óttast fjarveru fyrirliðans því þeir náðu að spila frábærlega gegn Chelsea á Stamford Bridge í fjarveru hans og skora fjögur mörk.
TIL BAKA
Steven Gerrard ekki með gegn Arsenal
Steven Gerrard mun ekki spila gegn Arsenal næstkomandi þriðjudagskvöld en búist var við því að fyrirliðinn myndi vera klár í þann leik.Gerrard á við meiðsli á læri að stríða og á æfingu fyrir leikinn við Chelsea í síðustu viku urðu meiðslin örlítið alvarlegri sem þýðir að Gerrard mun vera lengur á sjúkralistanum en upphaflega var talið.
Talsmaður félagsins staðfesti þetta: ,,Á æfingu fyrir leikinn við Chelsea í Meistaradeildinni urðu meiðsli Steven Gerrard enn verri. Gerrard fór í skoðun sem staðfesti það sem læknaliðið bjóst við og verður hann frá í viku til tíu daga. Gerrard mun halda áfram að vera í stífri sjúkraþjálfun á Melwood."
Fjarvera Steven Gerrard veikir vissulega liðið en leikmennirnir ættu ekki að óttast fjarveru fyrirliðans því þeir náðu að spila frábærlega gegn Chelsea á Stamford Bridge í fjarveru hans og skora fjögur mörk.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Alexander Isak frá næstu mánuði -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur
Fréttageymslan

