| SSteinn

Ferð á Liverpool - West Ham

Þá er komið að næstu ferð á vegum Liverpoolklúbbsins á Íslandi í samvinnu við Úrval Útsýn. Farið verður á leik Liverpool og West Ham sem fram fer um mánaðarmótin nóv/des. Gengi liðsins hefur heldur betur verið gott undanfarið og vonandi að toppsætið verði áfram í okkar höndum þegar kemur að þessum leik. Búast má við fjörugum leik á milli þessara liða.

Liverpool v West Ham 28. nóvember - 1. desember

Flug:
28. nóvember - FI 440 - KEF MAN - 17:30 - 20:05
1. desember - FI 441 - MAN KEF - 21:05 - 23:35

Gisting:
Radison SAS Liverpool
107 Old Hall Street

Frábært 4 stjörnu hótel á góðum stað miðsvæðis í borginni

Verð: 88.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, miði á leikinn, rútur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn

Aukagjald f. einbýli: 24.500 kr.

Hægt er að bóka ferðina á netinu á www.uu.is undir íþróttir eða með því að senda mail á [email protected]
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan