Ég klikkaðist!
Javier Macherano skoraði fyrsta mark sitt fyrir Liverpool með stórglæsilegum hætti gegn Reading um helgina. Sumir samherja hans voru ekki hrifnir af fagnaðarlátum hans.
"Þetta var ótrúlegt augnablik. Ég hafði ekki skorað mark síðan ég lék fyrir River Plate og það að skora mark fyrir Liverpool og fyrir framan Kop var mjög sérstakt. Ég get vart lýst tilfinningunni. Sumir strákanna í búningsklefanum sögðu að fagnaðarlætin hefðu verið lík því þegar Inzaghi skoraði gegn okkur í úrslitum Meistaradeildarinnar."
Benítez hefur sagt að Masherano ætti að skora fleiri mörk en Argentínumaðurinn heldur að það sé vart raunhæf krafa:
"Ég held að stjórinn hafi verið að grínast. Það væri gaman að skora fleiri mörk en ég held að það séu ekki margir varnartengiliðir sem skora fjölda marka. Maður verður að leika djúpt og halda jafnvæginu innan liðsins sem er mér mikilvægast. Ég mun reyna að skora fleiri mörk en ég verð fyrst að sinna mínu starfi."
-
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar -
| Grétar Magnússon
Dregið í Meistaradeild -
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik!

