Leikdagur ákveðinn
Búið er að ákveða leikdag á Deildarbikarrimmu Liverpool og Arsenal. Leikurinn, sem er í átta liða úrslitum keppninnar, fer fram á Anfield Road að kveldi þriðjudagsins 19. desember. Leikurinn hefst klukkan átta. Líkt og í fyrri umferðum keppninnar verður leikið til þrautar og gripið til framlengingar og vítaspyrnukeppni ef með þarf.
Leikmenn Liverpool fá þarna tækifæri til að ná hefndum á Skyttunum eftir tapið fyrir þeim á sunnudaginn. Eins og staða Liverpool er nú í deildinni þá er ljóst að Deildarbikarinn skiptir miklu. Sigur í keppninni lengir ekki bara afrekaskrána heldur gefur hann líka Evrópusæti af sér. Sigurvegarinn fær sæti í Evrópukeppni félagsliða.
-
| Sf. Gutt
Vopnahlésdagurinn -
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum!

