| Sf. Gutt

Í hnotskurn

Lærisveinninn fékk að finna fyrir því, Guð skoraði, himnarnir opnuðust og mörkunum rigndi. Evrópumeistararnir unnu sinn stærsta sigur á leiktíðinni. Þetta er leikur Liverpool og Fulham í hnotskurn.

- Liverpool hélt upp á 114. afmælisdag félagsins með tilheyrandi hætti.

- Þetta var stærsti sigur leiktíðarinnar.

- Hann var sá næst stærsti sem Liverpool hefur unnið frá því Rafael Benítes tók við stjórn liðsins. Sá stærsti kom á öðrum degi jóla fyrir rúmu ári þegar Liverpool vann West Bromwich Albion 5:0 á útivelli.

- Robbie Fowler skoraði sitt fyrsta mark fyrir Liverpool eftir endurkomuna.

- Markið hans Robbie var það fyrsta sem sóknarmaður skorar fyrir Liverpool í deidinni á því Herrans ári 2006!

- Markið sem Robbie skoraði var það 172. sem hann skorar á ferli sínum hjá Liverpool. Hann er nú jafn Kenny Dalglish sem fimmti markahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi vega.

- Það var kannski táknrænt að Robbie skyldi skora sitt fyrsta mark eftir endurkomuna gegn Fulham. Hann skoraði jú sitt fyrsta mark fyrir Liverpool gegn gegn Fulham á sínum tíma.

- Robbie hefur þar með skorað sjö mörk í aðeins þremur leikjum gegn Fulham!

- Fernando Morientes skoraði sitt fyrsta mark á árinu. Hann skoraði síðast þegar Liverpool vann Middlesbrough 2:0 þann tíunda desember. Fernando skoraði bæði mörk Liverpool í þeim leik.

- Þetta var tíunda mark Spánverjand fyrir félagið. Hann hefur nú leikið 52 leiki með Liverpool.

- Peter Crouch skoraði sitt fyrsta mark í deildinni frá því á gamlársdag. Hann skoraði þá sigurmarkið gegn West Bromwich Albion á Anfield Road.

- Þetta var níunda markið sem Peter skorar fyrir Liverpool.

- Stephen Warnock skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið sem hann hefur stutt alla tíð. Hin harðskeytti bakvörður var að leika sinn 55. leik. Hver vildi ekki skora fyrir uppáhaldsfélagið sitt og það fyrir framan The Kop.

- Stephen kom inn á sem varamaður þegar ein mínúta var eftir. Hann gat samt fagnað tveimur mörkum á þeim tíma sem lifði leiks!

- Það var kaldhæðnislegt að það var uppeldissonur Liverpool sem þurfti að sækja boltann fimm sinnum í netið. Tony Warner fékk knattspyrnuuppeldi sitt hjá Liverpool og lék í yngri liðum félagsins með Robbie Fowler. Þeir eru enn góðir kunningjar.

- Tony lék aldrei með aðalliði Liverpool en hann var alls 120 sinnum á varamannabekknum án þess að koma inn á! Það mun vera met í sögu Liverpool.

- Tony lék sinn fyrsta landsleik á dögunum fyrir Trínídad og Tóbagó þegar þarlendir lögðu Íslendinga að velli 2:0 á Loftus Road í Lundúnum. Tony spilaði seinni hálfleikinn. Hann gæti því hugsanlega leikið í Þýskalandi í sumar.

Maður leiksins: Robbie Fowler. Auk þess að skora sitt fyrsta mark eftir endurkomuna þá lék hann frábærlega og var allt í öllu í sóknarleik Liverpool. Hann var sókndjarfur og reyndi líka að leggja upp færi fyrir félaga sína.

Jákvætt :-) Evrópumeistararnir röðuðu inn mörkum og það var sannarlega tími til kominn. Það merkilega var að Liverpool hefur spilað betur í sumum undanfarinna leikja en munurinn var sá að nú gekk allt upp. Robbie Fowler skoraði og tveir aðrir sóknarmenn skorauðu. Það var líka gaman að sjá Stephen Warnock skora sitt fyrsta mark.

Neikvætt :-(  Það spilllir ekkert gleðinni eftir þannan langþráða sigur!

Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Agger, Traore, Luis Garcia, Gerrard, Hamann, Kewell (Warnock 88. mín.), Fowler (Cissé 68. mín.), Morientes (Crouch 81. mín.). Ónotaðir varamenn: Dudek og Hyypia.

Mörk Liverpool: Robbie Fowler (16. mín.), Michael Brown sm. (34. mín.), Fernando Morientes (71. mín.), Peter Crouch (89. mín.) og Stephen Warnock (90. mín.). 

Fulham: Warner, Rosenior, Knight (Christanval 69. mín.), Pearce, Bridge, Radzinski (McBride 78. mín.), Malbranque, Brown, Pembridge, Boa Morte, John. Ónotaðir varammenn: Crossley, Helguson og Niclas Jensen.

Gul spjöld: Michael Brown og Wayne Bridge.

Mark Fulham: Collins John (25. mín.) 

Áhorfendur á Anfield Road: 42.293.

Umsögn Liverpool.is um leikinn: Liverpool byrjaði leikinn af miklum krafti og Luis Garcia skoraði af stuttu færi eftir aðeins tvær mínútur. Hann var þó rangstæður og markið var dæmt af. Sókn Liverpool var linnulaus á upphafskafla leiksins. Fernando Morientes komst í gott færi eftir frábæra sendingu frá Robbie en skot hans var laust og Tony Warner varði. En sókn Liverpool gat ekki endað með öðru en marki og það mark kom á 16. mínútu. Harry Kewell tók hornspyrnu. Luis Garcia framlengdi boltann yfir á fjærstöng og þar kom Robbie Fowler og skallaði í mark af markteignum við gífurlegan fögnuð áhorfenda. Þetta var langþráð mark og það er nokkuð langt um liðið frá því marki hefur verið fagnað jafn innilega á Anfield Road. Robbie átti algeran stórleik í fyrri hálfleik og var allt í öllu í sóknarleik Liverpool. Hann lagði upp færi fyrir Fernando en hann skaut í hliðarnetið. Áfram var sótt en gestirnir náðu að jafna á 25. mínútu þvert á gang leiksins. Collins John slapp þá einn í gegn upp hægra megin enda var Djimi Traore víðs fjarri á sínu svæði. Hann lék inn í teiginn og skoraði af miklu öryggi framhjá Jose Reina. Markið kom eins og köld vatnsgusa framan í leikmenn Liverpool og þeir voru nokkra stund að jafna sig.

Liverpool komst aftur yfir á 34. mínútu. Robbie lagði boltann á Harry, sem var kominn út á hægri vænginn. Ástralinn sendi fyrir markið og rétt við marklínuna sendi Michael Brown boltann í eigið mark. Fernando var rétt fyrir aftan hann og hefði skorað en Michael sá um það. Steed Malbranque átti síðasta færi hálfleiksins en hann skaut rétt framhjá. Liverpool hafði því forystu þegar flautað var til leikhlés. Liverpool byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og strax í byrjun hálfleiksins átti Luis Garcia frábært skot utan vítateigs sem hafnaði í þverslánni.

Leikurinn var nú tíðindalítill um skeið. Fulham náði næstum að jafna eftir klukkutíma leik þegar miðvörðurinn Zat Knight átti skalla í stöng. En þetta reyndist síðasta færi Fulham. Djibril Cissé leysti Robbie af hólmi á 68. mínútu við litla hrifningu áhorfenda sem vildu njóta snilli Guðs lengur en hann hlaut mikið klapp þegar hann fór af velli. Frakkinn lét strax til sín taka. Á 71. mínútu sendi Steven Gerrard boltann fyrir eftir að hafa leikið snilldarlega á varnarmann. Djibril skallaði að marki. Tony varði en hélt ekki boltanum sem barst til Fernando Morientes sem þrumaði boltanum upp í þaknetið frá markteig. Þessu fyrsta marki Spánverjans frá því á miðri aðventu var vel fagnað jafnt innan vallar sem utan. Það var greinilegt að Fernando var létt og það var gaman að sjá hversu vel félagar hans fögnuðu honum.

Sigur Liverpool var svo gott sem í höfn en það var ekki allt búið enn. Peter Crouch kom til leiks á 81. mínútu og hann skoraði átta mínútum síðar. Steven Gerrard ruddist þá inn í vítateiginn vinstra megin. Hann skaut að marki. Boltinn hefði líklega ekki farið inn en Peter sá um að svo varð með því að stýra boltanum í markið af markteig. Enn var vel fagnað enda var þriðji sóknarmaður Liverpool að enda við að skora! Stephen Warnock tók að sjálfsögðu þátt í fagnðarlátunum en kom inn mínútu áður en Peter skoraði. Hann fagnaði þó miklu meira mínútu síðar. Steve Finnan braust þá inn í vítateiginn og skaut að marki. Tony gerði vel í að verja en boltinn hrökk út í vítateiginn þar sem Stephen Warnock kom aðvífandi og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Liverpool! Það sem meira var hann skoraði með hægri fæti! Þetta var sannarlega mögnuð stund fyrir Stephen! Markð fullkomnaði stærsta sigur Liverpool á leiktíðinni og hann gat varla komið á betri tíma!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan