| Sf. Gutt

Næstum fullkomin endurkoma

Endurkoma Robbie Fowler var næstum fullkomin. En það sem spillti henni var veikleiki sem hefur hrjáð Liverpool á leiktíðinni. Misnotkun góðra marktækifæra olli jafntefli gegn Birmingham í gærkvöldi. Liverpool lék einum fleri stóra hluta leiksins og fékk nóg af gullnum marktækifærum. En það gekk ekki að gera út um leikinn og því fór sem fór. Miðað við önnur úrslit í deildinni í þessari umferð þá var það alveg hroðalegt að ná ekki sigri. Sigri sem átti að nást. Til að bæta gráu ofan á svart þá var sigurmarkið dæmt af Robbie á lokamínútu leiksins. Reyndar var dómurinn réttur en það bætti ekki fyrir vonbrigðin.

Liverpool réði ferðinni frá upphafi en gestirnir voru ekki á þeim buxunum að gefa neitt eftir. Steven Gerrard átti fyrsta færi leiksins en bylmingsskot hans eftir aukaspyrnu fór rétt yfir markið. En eftir tuttugu mínútur fékk Birmingham dauðafæri. Daniel Agger, sem lék sinn fyrsta leik, urðu þá á slæm mistök. Hann kom boltanum ekki frá. Emile Heskey fékk boltann og sendi hann á Chris Sutton sem var í dauðafæri en Jose Reina varði mjög vel. Peter Crouch átti svo skalla rétt framhjá. En á 28. mínútu fækkaði í liði heimamanna þegar Damien Johnson var rekinn af velli fyrir hörkulega tæklingu á Daniel Agger. Fátt gerðist markvert fram að leikhléi.

Robbie hitaði vel upp í hléinu og það var greinilegt að hann átti að koma til leiks. Kannski virkaði sú vitneskja sem hvati á leikmenn Liverpool sem byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti. peter Crouch skallaði rétt framhjá og litlu síðar skallaði Mario Melchiot boltann í stöng á eigin marki þegar hann reyndi að bjarga marki. Þar kom að Liverpool skoraði á 62. mínútu. Þungri sókn lauk með því að Fernando Morients lagði boltann vel fyrir Steven Gerrard sem þrumaði honum í mark utarlega úr teignum. Eitthvað sneri boltinn varnarmann á leiðinni í markið en það breytti engu. Mikill fögnuður braust út þegar markinu var fagnað en hávaðinn varð enn meiri þegar Robbie Fowler kom til leiks áður en leikinn hófst að býju eftir markið. Varamanni hefur líklega aldrei verið fagnað eins mikið í sögu Liverpool. Hver einasti og einn einasti stuðningsmaður Liverpool stóð á fætur og klappaði fyrir Robbie. Á eftir var nafn hans sungið hástöfum. Leikmenn Liverpool ætluðu sér greinilega að gera út um leikinn en það gekk brösuglega. Besta færið fékk Luis Garcia en hann skaut framhjá í dauðafæri. Eins hefði Fernando Morientes átt að skora. En Liverpool átti líka að fá vítaspyrnu og jafnvel tvær. En undir lok leiksins fóru gestirnir allt í einu að reyna að sækja. Jose Reina varði þá frábærlega skalla frá Emile Heskey. Rétt á eftir, tveimur mínútum fyrir leikslok, skallaði Chris Sutton fyrirgjöf inn á markteiginn. Xabi Alonso kom þar að og stýrði boltanum í eigið net með brjóstkassanum. Það var ómögulegt að segja hvað hann ætlaðist fyrir. Þá upphófst ein mesta orrahríð sem Liverpool hefur haldið uppi að marki andstæðinga í langan tíma. Maik Taylor varði fyrst frábærlega fasta aukaspyrnu frá Xabi Alonso. Eftir hornspyrnuna sem fylgdi fékk Xabi aftur færi á að bæta fyrir mistök sín en aftur varði Maik frá honum nú af stuttu færi. Enn kom hornspyrna og eftir hana átti Dietmar Hamann skot sem hafnaði í þverslá. Ekki var allt búið enn og eftir langt innkast skoraði Robbie Fowler frábært mark með stórkostlegri hjólhestaspyrnu. En því miður þá var hann rangstæður. Endurkoman var næstum fullkomin en því miður ekki alveg.  

Liverpool: Reina, Finnan, Hyypia, Agger, Riise, Garcia, Gerrard (Alonso 72. mín.), Hamann, Kewell, Crouch (Fowler 63. mín.) og Morientes. Ónotaðir varamenn: Carson, Carragher og Warnock.

Mark Liverpool: Steven Gerrard (62. mín.) 

Birmingham: Taylor, Melchiot, Latka, Upson, Gray, Pennant, Kilkenny (Tebily 64. mín.), Johnson, Dunn (Lazaridis 34)(Bruce 90. mín.), Heskey og Sutton. Ónotaðir varamenn: Vaesen og Forssell.

Rautt spjald: Damien Johnson (28. mín.).

Mark Birmingham: Xabi Alonso, sjálfsmark (88. mín.).

Áhorfendur á Anfield Road: 43.851.

Rafael Benítez var í þungu skapi eftir leikinn. ,,Ég er mjög vonsvikinn því þegar það er búið að skora eitt mark þá þarf að skora annað til að gera út um leikinn. Sérstaklega þegar leikið er gegn tíu mönnum. En við gerðum það ekki. Við áttum nóg af færum en markvörður Birmingham var frábær. Ef Luis Garcia hefði skorað úr þessu góða færi sem hann fékk þá hefðum við unnið leikinn."

Það snerist allt um endurkomu Robbie Fowler á Anfield Road í gærkvöldi. Robbie fékk stórkostlegar móttökur þegar hann kom út á völlinn til að hita upp og áhorfendur fögnuðu gríðarlega þegar nafn hans var lesið upp fyrir leikinn. Fjórum árum og tveimur mánuðum eftir að hann yfirgaf sitt heittelskaða félag var hann kominn heim aftur. Hann hóf þó leikinn á varamannabekknum en það var enginn vafi á því hver átti kvöldið. Endurkoma hans hefði verið fullkomin ef markið sem hann skoraði hefði verið gilt. En markið og mörkin koma seinna!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan