| HI

Boss night 19. maí

Hvar er hægt að fá Liverpoolsöngva beint í æð frá trúbador sem kemur beint frá Liverpool? Svarið er: Í Gamla bíói 19. maí.

Trúbadorar frá Liverpool koma í heimsókn og skapa alvöru Liverpool stemningu sambærilega þeirri sem menn þekkja fyrir leiki á Anfield. Allir leikmannasöngvarnir, allir söngvarnir um velgengni Liverpool í gegnum árin, verða sungnir og þá er að taka hraustlega undir.

Þetta er einstakt tækifæri sem enginn Púllari má láta framhjá sér fara - sérstaklega ekki nú þegar möguleiki er á að vinna fjórfalt.

Hér má sjá dæmi um stemninguna á þessum viðburðum.

Hér er miðasalan á viðburðinn.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan