| Sf. Gutt
Roberto Firmino er meiddur. Meiðslin koma auðvitað á versta tíma og óljóst er hvort hann getur tekið þátt í úrslitaleiknum um Deildarbikarinn næsta sunnudag.

Roberto kom sterkur til leiks í hálfleik á móti Inter Milan í síðustu viku og skoraði fyrra markið í 0:2 sigri Liverpool. Hann leysti þá Diogo Jota af sem meiddist. Reiknað var fastlega með að Roberto, sem er búinn að skora átta mörk á leiktíðinni, yrði í byrjunarliðinu á móti Norwich City á laugardaginn en þá höfðu meiðslin komið í ljós. Ekki hefur verið gefið út hvers eðlis meiðslin eru nema um er að ræða vöðvameiðsli. Eins er ekki vitað hversu lengi hann verður frá.
Sem stendur gæti Liverpool verið án þeirra beggja Roberto og Diogo í úrslitaleiknum á móti Chelsea. Það myndi auðvitað veikja liðið mikið ef báðir verða ennþá meiddir á sunnudaginn kemur. Það liggur alla vegar fyrir að hvorugur getur leikið gegn Leeds United annað kvöld og ekki er það síður slæmt.
TIL BAKA
Roberto meiddur

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Mohamed skilinn eftir heima í Liverpool! -
| Sf. Gutt
Allt í uppnámi eftir hörð orð Mohamed Salah! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Ánægður með markið! -
| Sf. Gutt
Dagurinn sem breytti Liverpool F.C.! -
| Sf. Gutt
Hvatning frá núverandi fyrirliða!
Fréttageymslan