| Sf. Gutt

Verður alltaf goðsögn hjá Liverpool!


Sú ákvörðun Rafael Benítez að taka við sem framkvæmdastjóri Everton er umdeild. Sumir stuðningsmenn Liverpool fordæma ákvörðun Spánverjans á meðan aðrir segjast koma til með að halda jafn mikið upp á hann og áður.

Kenny Dalglish hefur blandað sér í umræðuna. Kóngurinn segir að þó svo Rafael hafi tekið við stjórn Everton verði Spánverjinn alltaf goðsögn hjá Liverpool. 


,,Mín skoðun er sú að hann verði alltaf goðsögn hjá félaginu. Ástæðan eru afrekin sem hann vann þegar hann var framkvæmdastjóri Liverpool og þar ber hæst sigurinn í Meistaradeildinni 2005."


Kenny Dalglish kom til starfa sem sendiherra Liverpool á valdatíma Rafael Benítez og það hefur alltaf farið vel á með þeim. Kóngurinn hefur sem sagt talað um þetta umdeilda mál!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan